Norðurlandamót Liam Norðurlandameistari í tölti unglinga

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir
Viktor og Ársól enduðu í fimmta sæti í úrslitunum

Áfram rúllar úrslitadagur  Norðurlandamóts í hestaíþróttum sem er að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Liam Billow og Agða från Tängby eru Norðurlandameistarar í tölti í unglingaflokki með 6,72 í einkunn en þau keppa fyrir Svíþjóð. Jöfn í öðru og þriðja sæti eru Andrea Scmidt Laursen á Kristal frá Hákoti og Michelle Edvall Karlsson á Kinnung frá Torfnuesi með 6,61 í einkunn

Niðurstöður úr a úrslitum í unglingaflokki
Sæti Knapi Hross Land Einkunn
1 Liam Billow Agða från Tängby Svíþjóð 6,72
2-3 Andrea Schmidt Laursen Kristall frá Hákoti Danmörk 6,61
2-3 Michelle Edvall Karlsson Kinnungur frá Torfunesi Svíþjóð 6,61
4 Mia Skavhaug Atgeir frá Margrétarhofi Norge 6,39
5 Viktor Arnbro Ársól från Stensäter Ísland 5,61
6 Summer Sandlau Jacobsen Djass fra Engholm Danmörk 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link