Lið Einhamars

  • 23. desember 2019
  • Fréttir
Lið Einhamars er annað liðið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild ungmenna

Lið Einhamars hefur á að skipa ungum og efnilegum hestakonum.

Sylvía Sól, liðsstjóri, er nemi á hestabraut í Fjölbrautaskólanum í Mosfellsbæ og er í verknámi  á Fákshólum.
Á sumrin starfar hún við reiðskóla og hestatengda ferðaþjónustu í heimabæ sínum í Grindavík. Sylvía Sól var tilnefnd sem efnilegasti knapinn á uppskeruhátíð LH en hún og Reina frá Hestabrekku urðu Íslandsmeistarar í tölti ungmenna 2019.
Ásdís Agla stundar hestamennsku sína í Spretti en er félagi í hestamannafélaginu Sóta. Hún hefur reynslu af bæði keppni á íslenska hestinum sem og keppni í hindrunarstökki og fimi en hún bjó um tíma í Namibíu og stundaði hestamennsku þar. Ásdís hefur verið að keppa mikið síðan hún kom heim til Íslands og keppti meðal annars á Landsmóti 2016 á hryssu sinni Líf frá Kolsholti.
Ásta Björk er nýútskrifuð af hestabraut úr Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Hún stundaði verknám sitt í Halakoti og vann tímabundið á hestabúgarði í Danmörku. Núna vinnur hún í Líflandi og aðstoðar Leó Hauks við járningar ásamt því að þjálfa hross í Mosfellsbæ.
Þóranna Brynja stundaði nám á hestabraut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Hún vann sumarið 2017 hjá Jón Finni Hanssyni við tamingu og þjálfun hrossa. Hún vann einnig hjá Rakel og Sævari tvo vetur við tamningar og hefur unnið hjá hinum og þessum við þjálfun sem og mikið sjálfstætt. Hún þjálfar hross upp í Víðidal.
Þóranna Brynja

Þóranna Brynja

Ásdís Agla

Ásdís Agla

Ásta Björk

Ásta Björk

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link