Lið Fákafars/Hestvits í Meistaradeild ungmenna
Undirbúningur fyrir Meistaradeild ungmenna og Top Reiter 2024 er hafin en fyrsta mótið verður 2. febrúar og þá verður keppt í fjórgangi. Deildin hefur hafið liðakynningu og næsta lið sem deildin kynnir til leiks er lið Fákafars/Hestsvits
Hér fyrir neðan er liðakynningin á liði Fákafar/Hestvits
Liðstjóri: Eydís Ósk Sævarsdóttir
Nafn: Eydís Ósk Sævarsdóttir
Hestamannafélag: Hörður
Vinna(hvar) eða skóli(hvaða)? Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og vinn fyrir foreldra mína í hesthúsinu og einnig í sumarbúðum á sumrin.
Besti hestur sem þú hefur prófað? Blakkur frá Traðarholti, fjölhæfasti hestur sem ég veit um.
Hvað hest myndir þú vilja prófa ef þú fengir tækifæri til? Klárlega Bárð frá Melabergi.
Hefur þú keppt á landsmóti? Já fyrsta skipti 2018 í barnaflokki og fór í B- úrslit og endaði í 15. Sæti, síðan í unglingaflokki 2022 en komst ekki eins langt þá.
Ferð þú í hestaferð á sumrin? Já förum stundum í hestaferðir með vinafólki í sveitinni.
Nafn: Auður Karen Auðbjörnsdóttir
Hestamannafélag: Léttir
Vinna/skóli? Ég hef mest unnið sjálfstætt heima á Gásum og svo í Litla-Garði og Garðshorni á Þelamörk í Eyjafirði.
Besti hestur sem þú hefur prófað? Erfitt að nefna einhvern einn en það eru Bára og Melódía frá Gásum og Gletta frá Hryggstekk.
Hvaða hest myndir þú vilja prófa? Bárð frá Melabergi
Hefur þú keppt á Landsmóti? Já 2018 en ég fór í botnlangauppskurð 10 dögum áður og gat þá ekkert æft svo það hefði getað gengið betur
Ferð þú í hestaferð á sumrin? Já ég fer í margar hestaferðir á sumrin og finnst það eitt af því skemmtilegasta við hestamennskuna. Fórum sennilega um 700km í sumar í nokkrum ferðum
Nafn: Hjördís Helma Jörgensdóttir
Hestamannafélag: Dreyri
Vinna(hvar) eða skóli(hvaða)? Galito á Akranesi sem þjónn síðan er ég í LBHÍ að læra landslagsarkítektúr.
Besti hestur sem þú hefur prófað? Mía frá Fornusöndum. Fékk hana í fermingargjöf, hún er algjör fjölskyldu hestur. Síðan ntl Hrafn frá Þúfu í Kjós, besti vinur minn algjör gullmoli þessi hestur!
Hvað hest myndir þú vilja prófa ef þú fengir tækifæri til? Bárð frá melabergi!
Hefur þú keppt á landsmóti? Keppti árið 2022.
Ferð þú í hestaferð á sumrin? Elska hestaferðir! Komst þvi miður ekki í fyrra:(
Nafn: Aníta Eik Kjartansdóttir
Hestamannafélag: Hörður
Vinna(hvar) eða skóli(hvaða)? Ég er að læra flugumferðarstjórn og er að vinna í útifataverslun og að þjálfa/temja
Besti hestur sem þú hefur prófað? Besti hesturinn sem ég hef prófað er Lóðar frá Tóftum hann mun alltaf vera minn uppáhalds
Hvað hest myndir þú vilja prófa ef þú fengir tækifæri til? Ætli það væri ekki bara Flóvent frá Breiðstöðum
Hefur þú keppt á landsmóti? Já ég hef keppt nokkrum sinnum á landsmóti
Ferð þú í hestaferð á sumrin? Já ég fer yfirleitt í hestaferðir á sumrin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH