Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Lið Fossvéla og Erla Guðný sigurvegarar Samskipadeildar

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir

Lið Fossvéla vann sigur í liðakeppni. Á myndinni eru f.v. Þórdís Sigurðardóttir, Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson, Þórunn Kristjánsdóttir og Theódóra Þorvaldsdóttir. Ljósmyndir: Gunnhildur Ýrr

Lokamót fór fram um síðustu helgi og um kvöldið voru sigurvegarar heiðraðir

Samskipadeildin – Áhugamannadeild Spretts er lokið þennan veturinn eftir skemmtilegt keppnistímabil. Í deildinni keppa knapar víðs vegar að á landinu og hefur metnaður þeirra og áhugi við að gera vel skynið í gegn í hverri keppnisgrein.  Alls var keppt í fimm greinum í deildinni í vetur; fjórgangi, slaktaumatölti, fimmgangi, tölti og gæðingaskeiði.

Á lokahófi deildarinnar voru verðlaun veitt fyrir efstu sætin bæði í einstaklings- og liðakeppni. Þá var Sigurður Rúnar Pálsson útnefndur þjálfari ársins í deildinni en hann er þjálfari liðs Réttverks. Einnig voru veitt verðlaun fyrir faglegustu sýningu ársins og féllu sú verðlaun í skaut Þórunnar Kristjánsdóttir á Tý frá Hólum í fimmgangi.

Þjálfari ársins, Sigurður Rúnar Pálsson, ásamt liði Réttverks sem hann þjálfaði í vetur

Erla Guðný á toppnum!

Í einstaklingskeppninni var það Erla Guðný Gylfadóttir úr liði Fossvéla sem bar sigur úr býtum. Hún átti gott tímabili í deildinni og tók þátt í öllum mótum að undanskilinni keppni í fimmgangi. Hún vann tvær greinar á hryssunni Flugu frá Garðabæ þ.e. í tölti og fjórgangi. Þá reið hún til A-úrslita í slaktaumatölti á Roða frá Margrétarhofi og keppti í gæðingaskeiði á Ásu frá Fremri Gufudal. Var heildarstigasöfnun hennar alls 29 stig. Í öðru sæti með 27,5 stig var Sarah Maagaard Nielsen og í því þriðja Darri Gunnarsson með 20 stig.

10 efstu í einstaklingskeppni
  1. Erla Guðný Gylfadóttir – 29 stig
  2. Sarah Maagaard Nielsen – 27,5 stig
  3. Darri Gunnarsson – 20 stig
  4. Þórunn Kristjánsdóttir – 19 stig
  5. Auður Stefánsdóttir – 18 stig
  6. Glódís Helgadóttir – 17 stig
  7. Rósa Valdimarsdóttir – 16,5 stig
  8. Guðlaug Jóna Matthíasdóttir – 15 stig
  9. Gunnar Már Þórðarson – 15 stig
  10. Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir – 14,5 stig

Erla Guðný tekur við viðurkenningu sem stigahæsti knapi í einstaklingskeppni

Í liðakeppni var það lið Fossvéla sem sigraði keppinauta sína en alls kepptu 14 lið í deildinni. Hlaut lið Fossvéla 500 stig. Liðsmenn þess eru Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson, Theódóra Þorvaldsdóttir, Þórdís Sigurðardóttir og Þórunn Kristjánsdóttir. Þjálfari liðsins er Viðar Ingólfsson. Liðið átti mjög góðu gengi að fagna og vann liðaskjöldinni, heildarstiga-keppni hvers kvölds, í fjórgangi, slaktaumatölti og tölti. Annað stigahæsta liðið var Réttverk með 435,5 stig og einu stigi neðar með 434,5 stig var Frosti.

Niðurstaða í liðakeppni
  1. Fossvélar – 500 stig
  2. Réttverk – 435,5 stig
  3. Frosti – 434,5 stig
  4. Trausti – 396 stig
  5. Sveitin 364,5 stig
  6. Hótel Rangá – 356,6 stig
  7. JBT Marel & Tommy Hilfiger – 300 stig
  8. Stafholtshestar – 277 stig
  9. Vestlendingarnir – 256,5 stig
  10. Rembrandt – 251,5 stig
  11. Lið Spesíunnar – 220,5 stig
  12. Nýsmíði – 197 stig
  13. Vörðufell – 150,5 stig
  14. Hrossaræktin Strönd 113 stig

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link