Lið Storm Rider í KS deildinni
Meistaradeild KS hefst á gæðingafimi þann 2. mars. Næsta lið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild KS 2022 er lið Storm Rider.
Elvar Einarsson er liðsstjóri en hann er útskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Með honum er Bjarni Jónasson þjálfari á Narfastöðum, Finnbogi Bjarnason útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og þjálfari á Narfastöðum, Andís Björk Brynjólfsdóttir reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og reiðkennari á hestabraut FNV og Ásdís Ósk Elvarsdóttir nemandi á öðru ári við Háskólann á Hólum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH