Liðakynning í KS deildinni
Liðstjóri þessa liðs er Sina Scholz.Sina stundar tamningar á Sauðárkróki en hún er útskrifaður reiðkennari frá Hólum. Hún hefur unnið hjá nokkrum fremstu knöpum landsins og vakti athygli í fyrra með hest sinn Nóa frá Saurbæ.
Með henni í liði er Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir nemandi á Hólum sem hefur getið sér gott orð sem tamningamaður og sýnandi þrátt fyrir ungan aldur.
Flosi Ólafsson er þarna liðsmaður. Flosi er núverandi Íslandsmeistari í T2 og sýndi efsta 5v. stóðhest á Landsmótinu á Hólum. Flosi er nemandi á Hólum.
Pétur Örn Sveinsson reiðkennari á Hólum er nýr í deildinni. Pétur hefur vakið athygli með stóðhestinn Hlekk frá Saurbæ og verður gaman að sjá hvort Hlekkur mætir í Höllina í vetur. Þess má geta að Pétur er frændi Jóns Geirmunds.
Inn í liðið kemur frá Flugumýri Sigurður Rúnar Pálsson. Siggi er keppnismaður mikill og hefur örugglega yfir góðum hrossum að ráða. Hann er einnig útskrifaður reiðkennari frá Hólum.
Í þessu liði eru allir tengdir við Hóla núverandi og fyrrverandi nemendur og einn starfandi reiðkennari þar.Þarna hlýtur fagmennskan að skína í gegn.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH