Liðið Draupnir/Þúfur
Fyrsta liðið sem við kynnum til leiks í KS-Deildinni 2016 er Draupnir/Þúfur.
Liðstjóri er Mette Mannseth og með henni í liði eru Gísli Gíslason, Barbara Wenzl og Artemisia Bertus en hún kemur ný inn í þetta lið. Lið Draupnis endaði í 3 sæti í liðakeppninni í fyrra og ætla þau sér eflaust stærri hluti í ár.
Keppniskvöld KS-Deildarinnar
17. febrúar – Fjórgangur
2. mars – Fimmgangur
16. mars – Tölt
30. mars – Gæðingafimi
6. apríl – Slaktaumatölt og skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH