Meistaradeild Líflands & æskunnar Liðin Hestaval og Hofsstaðir / Sindrastaðir kynnt

  • 3. febrúar 2022
  • Fréttir
Liðakynning heldur áfram fyrir Meistaradeild Líflands og æskunnar

Við höldum áfram með liðakynninguna og kynnum til leiks liðin Hestaval og Hofsstaði / Sindrastaði

Hestaval

Hestaval er lið sem var í Meistaradeild Líflands & æskunnar í fyrravetur og keppti þá undir nafninu Icewear. Liðið skipa fjórar stúlkur og enduðu þær í 6. sæti liðakeppninnar í fyrra og stefna hærra í ár!

Nafn: Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir

Félag: Snæfellingur
Markmið: Að gera mitt besta hverju sinni
Mottó: Aldrei gefast upp
Fyndnasti hestamaðurinn: Erfitt að gera upp á milli þar sem ég þekki bara skemmtilega hestamenn
Hvar verður þú eftir 10 ár: Vonandi útskrifuð frá Hólum og starfandi við tamningar,þjálfun og reiðkennslu

Nafn: Kolbrún Katla Halldórsdóttir

Félag: Borgfirðingur
Markmið: Að komast í landsliðið
Mottó: Að gera betur í dag en í gær
Fyndnasti hestamaðurinn: Afi minn
Hvar verður þú eftir 10 ár: Að þjálfa og rækta hross

 

Nafn: Kolbrún Sif Sindradóttir

Félag: Sörli
Markmið: Gera mitt besta
Mottó: work hard, play hard
Fyndnasti hestamaðurinn: flestir hestamenn fyndnir
Hvar verður þú eftir 10 ár: Útskrifuð af Hólum og atvinnukona í hestum

 

Nafn: Kristín Karlsdóttir

Félag: Fákur
Markmið: Ganga vel
Mottó: Gefast aldrei upp
Fyndnasti hestamaðurinn: Allir skemmtilegir
Hvar verður þú eftir 10 ár: Að gera eitthvað skemmtilegt

 

Team Hofsstaðir/Sindrastaðir

Team Hofsstaða/Sindrastaða skipa fjórir vaskir knapar, tveir úr Garðabæ og tveir norðan úr Húnavatnssýslu. Í liðinu er einn nýliði en að öðru leyti er liðið óbreytt frá í fyrra þegar það lenti í 3. sæti liðakeppninnar.

Nafn: Guðný Dís Jónsdóttir

Félag: Hestamannafélagið Sprettur
Markmið: Koma vel undirbúin og gera mitt allra besta.
Lífsmottó: Þeir skora sem þora.
Fyndnasti hestamaðurinn: Það er klárlega hann Ævar Örn, fáir sem toppa þann meistara!
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Allt galopið.

Nafn: Elva Rún Jónsdóttir

Félag: Hestamannafélagið Sprettur
Markmið: Gera betur en í fyrra og koma vel undirbúin.
Lífsmottó: Þetta reddast
Fyndnasti hestamaðurinn: Það verður klárlega hann frændi minn Kristinn Hugason (a k a Kiddi Huga).
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Ætli maður verði ekki bara í skóla eða vinnu, hver veit.

Nafn: Aðalbjörg Emma Maack

Félag: Hestamannafélagið Þytur
Markmið: Komast í úrslit á stórmótum.
Lífsmottó: Komdu fram við aðra eins og þú vilt að sé komið fram við þig.
Fyndnasti hestamaðurinn: Guðmar Hólm
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Vera á Sindrastöðum og þjálfa hesta og ná mér í menntun í hestum.

 

Nafn: Guðmar Hólm Ísólfsson

Félag: Hestamannafélagið Þytur
Markmið: Vera valinn til að keppa á mótum landsliðsins.
Lífsmottó: Stefndu hátt en lifðu í núinu.
Fyndnasti hestamaðurinn: Konráð Valur Sveinsson.
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Vera að þjálfa og sýna hesta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link