Líf hjá hestamannafélögum
Hestamannafélögin eru að vakna aftur til lífsins eftir örstutta hausthvíld. Mörg þeirra boða nú til félagsfunda og eru farin að kalla eftir góðu fólki í nefndarstörf, önnur hafa staðið fyrir mannfögnuðum og uppskeruhátíðum:
Á Akureyri boðar hestamannafélagið Léttir til félagsfundar miðvikudaginn 19. október kl. 20 í Top Reiterhöllinni, þar sem viðburðadagsskrá félagsins fyrir næsta ár verður kynnt.
Reiðhallarnefnd félagsins auglýsir jafnframt lausa stöðu umsjónarmanns í Top Reiter höllina. Um er að ræða 75 – 100% starf með sveigjanlegum vinnutíma en umsóknarfrestur er til 15. október. Upplýsingar um starfið má nálgast hér.
Fákur boðar til nefndardags á laugardag, þar sem nefndir félagsins stilla saman strengi og undirbúa vetrarstarfið. Félagið kallar jafnframt eftir fleira fólki í nefndir enda stórt og mikið starfsár framundan hjá Fáki.
Áhugasamir Andvarafélagar eru einnig beðnir um að gefa kost á sér í stjórn eða nefndir á netfang formannsins: [email protected].
Einnig auglýsa Sörlamenn eftir mönnum í fjölbreyttar nefndir félagsins en aðalfundur þess verður haldinn 27. október nk. Áhugasamir félagar eru beðnir um að senda línu á netfangið [email protected].
Uppskeruhátíð Loga var haldin í Reykholti 4. október sl. þar sem börn og unglingar héldu upp á starfsárið, þar sem sýnd voru myndbrot frá uppsveitdeildarkeppnum og landsmótsundirbúningi ungra Logamanna.
Karítas Ármann var verðlaunuð og hlaut farandgripinn Feyki, sem Jóhann Björn Óskarsson gaf í minningu sonar síns. Gripurinn er veittur Logafélaga sem sýnir framafarir á sviði hestamennsku og er jafnfram góð fyrirmynd.
Þá hélt hestamannafélagið Ljúfur upp á 50 ára afmæli félagsins.
Hjá hestamannafélaginu Neista fara knapamerkjanámskeið að byrja með bóklegri kennslu og því ekki seinna vænna fyrir Neistamenn að skrá sig.
Skuggi í Borgarnesi stendur fyrir hrossauppboði á föstudaginn eins og sagt var frá í gær og nágrannar þeirra í Snæfellingi boða til folaldasýningar þann 21. október nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH