Líf og fjör í hestamannafélaginu Fáki
Þessa dagana er mikið um að vera hjá hestamannafélaginu Fáki. Meira en 100 manns lögðu leið sína í TM reiðhöllina í gær, miðvikudaginn 29. september þegar Benni Líndal var með afar áhugaverða sýnikennslu um frumtamningar á hestum. Benni kom með fjóra ólíka hesta á mismunandi stigum tamningar og fór yfir sínar áherslur og vinnubrögð. Hann lagði mikla áherslu á teymingar, léttleika og gleði. Í hléi fengu sýningargestir sér kaffi og meðí og dáðust að nýrri bók Benna og Siggu „Tölum um hesta“ sem kemur út núna í næsta mánuði. Fræðslunefnd Fáks vill þakka Benna fyrir frábæra sýningu og öllum sýningargestunum fyrir komuna.
Á laugardaginn verður svo herrakvöld Fáks haldið með pompi og pragt. Sala miða er nú þegar hafin á viðburðinn í Skalla og eru herrar sem vilja gera sér dagamun í góðra vina hópi hvattir til þess að smella sér á einn miða.
Fræðslustarf félagsins er einnig í miklum blóma. Kennsla bóklegra knapamerkja hefst í október undir styrkri stjórn Sigrúnar Sigurðardóttur reiðkennara. Helgina 9.-10 október verður svo Anton Páll Níelsson með helgarnámskeið og strax helgina á eftir 16.-.17. október verður heimsmeistarinn Julie Christansen með helgarnámskeið í Fáki. Öll þessi námskeið eru opin fyrir alla félaga í hestamannafélögum, semsagt ekki eingöngu fyrir Fáksfélaga. Þeir sem vilja hefja þjálfun vetrarins með krafti og bæta við sig þekkingu er því bent á að skrá sig í gegnum Sportfeng sem fyrst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH