Lífið hjá hestamannfélögum: Fjölbreytt dagskrá um helgina
Hestamannafélögin hafa flest hafið undirbúning sinn fyrir komandi vetur, en hefur ærlega lifnað yfir vefsvæðum þeirra í vikunni. Mikið verður um mannfagnaði af ýmsu tagi um helgina, uppskeruhátíðir og folaldasýningar. Þá eru spennandi fæðslufundir á dagskrá í næstu viku:
- Uppskeruhátíð Snæfellings fer fram í kvöld kl. 19.30 að Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit (í fjósinu sem hefur verið breytt í samkomusal) Frjálslegur klæðnaður, gamli lopinn upplagður og viðurkenning fyrir flottasta höfuðfatið. Grillað verður á staðnum og kostar maturinn 2500 kr en 1500 kr. fyrir 16 ára og yngri. Fólk kemur með drykkjarföng með sér. Veitt verða verðlaun fyrir góðan árangur á árinu.
- Folaldasýning Skeiðamanna verður haldin í reiðhöllinni í Vorsabæ 2 laugardaginn 12. nóv. kl 13:30. Allir eru velkomnir að koma og fylgjast með.
- Uppskeruhátíð Léttis og Funa verður haldin í Jaðri (golfskálanum) á morgun laugardagskvöldið 12. nóvember. Húsið opnar kl 19:30 með fordrykk Borðhaldið hefst kl. 20. Hljómsveitin Í sjöunda himni leikur fyrir dansi. Miðaverð er 5500 kr. án drykkjarfanga sem gestir eru beðnir um að koma með. Miðasala er í Fákasporti og Líflandi, Akureyri og lýkur henni í dag kl. 18.
- Stjórn Seláss ehf. blæs hins vegar til vinnudags í Faxaborg á laugardag. “Eitt og annað þarf að gera, mála og smíða og ganga frá ýmsu sem eftir er að gera svo húsið verði í sem bestu standi fyrir komandi vertíð. Þeir sem geta lagt fram vinnu eru beðnir um að hafa samband við Inga Tryggva (860 2181) eða Ámunda. Áætlað er að hefja störf kl. 9 árdegis. En allt vinnuframlag er vel þegið, hvort sem það er heill vinnudagur eða hluti úr degi. Félagar, leggjum metnað okkar í það að halda Faxaborg í sem allra besta standi,” segir á heimasíðu Skugga.
- Þá fer fram folaldasýning á vegum Hrossaræktarsambands Dalamanna í Nesoddahöllinni á morgun kl. 14. Keppt verður í flokki hryssu- og hestfolalda. Áhorfendur munu velja folald sýningarinnar. Skráningarfrestur rennur út í dag og skráningargjald á folald er 1.000 kr. Fram þarf að koma eigandi, nafn, uppruni, litur, kyn, móðir og faðir. Skráningar sendist á netfangið [email protected] eða í síma 661 0434. Aðgangur er ókeypis. Einnig er minnir stjórn Hrossaræktarsambands Dalamanna á aðalfund sinn sem haldinn verður í Leifsbúð 23. nóvember kl. 20. Það kemur fram á heimasíðu Glaðs.
- Sunnudaginn 13. nóvember mun hin árlegi haustfundur hestamannafélagsins Hrings fara fram. Boðið verður upp á léttar veitingar. Fundurinn hefst kl 13:00 í félagsaðstöðunni í Hringsholti. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og koma hugmyndum sínum um starf vetrarins á framfæri. Um kvöldið milli klukkan 19 og 21 ætlar æskulýðsnefndin félagsins síðan að koma saman.
- Fundur um Húnvetnsku liðakeppnina verður haldinn í Félagshúsi Þyts 2012 mánudaginn 14. nóvember kl. 20.30. Fyrirhugaðar dagssetningar fyrir mótaröðina 2012 eru:
- 10. febrúar – Fjórgangur
- 25. febrúar – Smali og skeið á Blönduósi
- 16. mars – Fimmgangur og tölt unglinga
- 14. apríl – Tölt
Einnig mun fræðslunefnd Þyts fara yfir vetrarstarfið.
- Fræðslu- og skemmtinefnd Dreyra auglýsir fræðslufyrirlestur með Ingimari Sveinssyni þann 17. nóvember kl. 20 í félagsheimili Dreyra í Æðarodda um fóðrun og umhirðu hrossa. Miðverð er 1000 kr. og borgist á staðnum.
- Aðalfundur Hestamannafélagsins Blæs verður haldinn fimmtudaginn 17. nóvember kl 20 í húsi félagsins á Kirkjubólseyrum.
- Sigurjón Hendriksson verður með fyrirlestur í Glaðheimum í Kópavogi 19. nóvember kl. 11:00. “Fyrirlestur um öryggismál fyrir hestamenn, hvað á að gerast ef óhöpp verða, fyrsta hjálp, hvað ber að gera, teikn og einkenni, ósk um aðstoð, samskipti og spurningar neyðarlínu, einnig verður farið í sjúkrabúnað sem gott er að hafa í styttri og lengri ferðir,” segir á heimasíðu Gusts.
- Uppskeruhátíð búgreinafélaganna í A.-Hún. og hestamannafélagsins Neista verður haldin laugardaginn 19. nóvember í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnað kl. 20:00 með fordrykk í boði SAH Afurða. Glæsilegur þriggja rétta kvöldverður. Stórhljómsveit Dúa og Stulla heldur uppi stuðinu fram eftir nóttu. Miðaverð kr. 5.500. Forsala aðgöngumiða verður á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH