LÍFStöltið 2012
LÍFStöltið verður haldið í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ þann 24. mars kl. 10. Mótið er haldið til að styrktar kvennadeildar LSH.
Skráning verður í Harðarbóli miðvikudaginn 22. mars á milli kl. 19 og 22 og í síma 566 8282.
Skráningargjöld eru frjáls framlög, þó að lágmarki kr. 2000.
Keppt verður í 4 flokkum:
- Byrjendur
- Minna vanar
- Meira vanar
- Opinn flokkur
Verðlaun eru í formi peningagjafa sem renna beint til LÍFS. Aðgangseyrir er frjáls og rennur til LÍFS en lágmark er kr. 500.
Hulda Gústafsdóttir margfaldur íslands- og heimsmeistari opnar mótið og leiðir skrautreið til heiðurs konum.
Brjóstamjólkurreið
Ekki missa af æsispennandi boðreið með könnu fulla af mjólk þar sem liðsstjórar verða Helgi Björns, Bryndís Ásmunds, Hilmir Snær og Magni en bæði karlar sem konur geta keypt sig inn í lið þeirra og keppt í þessum- eldfjöruga kappleik!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH