Líklegir Berlínarfarar
Jarl frá Mið-Fossum er á uppleið aftur eftir nokkra lægð í fyrra. Hann hefur stundum verið kallaður Berlínar-Brúnn.
Sigurbjörn Bárðarson vann töltið á Suðurlandsmóti með yfirburðum á Jarli frá Mið-Fossum með 8,17 í úrslitum. Það glittir því í að Jarl standi aftur undir viðurnefninu Berlínar-Brúnn, sem hann fékk á Meistaramóti Andvara fyrir tveimur árum. Eftir það fór hann í nokkra lægð en er nú að koma upp aftur.
Snorri Dal hélt fyrsta sætinu í fjórgangi á Gusti frá Stykkishólmi og fékk 7,67 í úrslitunum. Gustur er einnig hestur sem byrjaði vel, síðan í lægð en er nú á uppleið aftur samkvæmt gengi hans á Suðurlandsmóti.
Haukur Baldvinsson varð efstur í fimmgangi á Fal frá Þingeyrum með 7,45 í einkunn. Svo virðist sem dómarar kunni nú loks orðið að meta frábæra skeiðspretti þeirra félaga í fimmgangi og í heildina gott og fallegt samspil. Haukur vann einnig gæðingaskeiðið á Fal.
Telja má líklegt að þessir þrír knapar stefni með þessa hesta á HM úrtöku næsta vor. Það skal þó tekið fram að enginn þeirra hefur verið spurður að því sérstaklega. Enginn vafi leikur þó á að allir eiga þeir góða möguleika í sínu besta formi. Nokkur þeirra hrossa sem verið hafa á toppnum í hestaíþróttunum, stóðhestar og hryssur, eru horfin af þeim vettvangi og komin í önnur hlutverk, svo sem Alfa frá Blesastöðum 1a. Það eykur möguleika þeirra sem falir eru í þennan slag og eru sannanlega í hópi þeirra bestu.
Því má bæta við að Sigurbjörn bar höfuð og herðar yfir aðra knapa í skeiðinu. Hann vann 150 metra skeiðið á Óðni frá Búðardal á 14,79 sekúndum, og 250 metrana á Andra frá Lynghaga á 22,3 sekúndum. Andri er nýr skeiðhestur hjá Didda, 11 vetra undan Adam frá Ásmundarstöðum og Söndru frá Stafholtsveggjum, Ófeigsdóttur frá Hvanneyri.
Í 100 metra skeiðinu var það hins vegar Daníel Ingi Smárason sem var hlutskarpastur á Herði frá Reykjavík á 7,64 sekúndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH