Líklegir til 1.verðlauna fyrir afkvæmi- þrír hestar náð lágmörkum

  • 30. apríl 2020
  • Fréttir

Stormur frá Herríðarhóli er einn af þeim hestum sem náð hefur lágmörkum til 1.verðlauna mynd: Jens Einarsson

Nýtt kynbótamat var birt nú á dögunum með endurbætum eins og kom fram í grein er birtist á Eiðfaxa og má lesa með því að smella hér.

Þessar breytingar urðu ekki til þess að breytingar verði gerðar á verðlaunastigum fyrir stóðhesta varðandi afkvæmaverðlaun. Til 1.verðlauna fyrir afkvæmi þarf stóðhestur ennþá 118 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og 15 dæmd afkvæmi en til heiðursverðlauna 118 stig og 50 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, þannig verða afkvæmaverðlaun einnig veitt þeim stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeiðs. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.

Líklega stóðhestar til heiðursverðlauna hér á landi má finna með því að smella hér.

Þrír stóðhestar hafa nú þegar náð lágmörkum til 1.verðlauna þetta eru þeir Stormur frá Herríðarhóli, Borði frá Fellskoti og Loki frá Selfossi

 

Nafn Uppruni Ae. Ae. án skeiðs Fj.afkvæma
Stormur Herríðarhóli 119 122 20
Loki Selfossi 118 127 42
Borði Fellskoti 113 120 24

 

 

Eftirfarandi hestar eru líklegir til að hljóta 1.verðlaun fyrir afkvæmi á þessu ári á Íslandi raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins eins og það stendur nú. Það er þó misjafnt hversu mörg afkvæmi þessarra hesta þurfi að koma til dóms til að þeir nái lágmörkum en allir eiga þeir góða möguleika.

 

Nafn Uppruni Ae. Ae. án skeiðs Fj.afkvæma
Ölnir Akranesi 127 122 4
Konsert Hofi 127 122 4
Knár Ytra-Vallholti 124 115 9
Skaginn Skipaskaga 122 116 8
Ársæll Hemlu II 119 114 9
Sólbjartur Flekkudal 118 115 8
Lord Vatnsleysu 117 118 8
Kolskeggur Kjarnholtum 117 113 10
Hreyfill Vorsabæ 115 126 6
Vákur Vatnsenda 113 123 4

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link