Líklegir til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi

  • 23. nóvember 2021
  • Fréttir

Hringur frá Gunnarsstöðum stendur efstur hesta til að hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkæmi í ár. Knapi Þórarinn Ragnarsson. Mynd: ÓÖJ

Líklegir afkvæmahestar á næsta Landsmóti

Til að stóðhestur hljóti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 15 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeið nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.

Eftirfarandi hestar eru líklegir til að hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Íslandi og koma fram á næsta Landsmóti með afkvæmahópum sínum. Þeim er raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins eins og það stendur nú. Það er þó misjafnt hversu mörg afkvæmi þessara hesta þurfa að koma til dóms til að þeir nái lágmörkum en sumir hafa náð þeim nú þegar.

Hringur frá Gunnarsstöðum I og Hreyfill frá Vorsabæ II hafa nú þegar náð lágmörkum til fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og munu því fá afkvæmaorð birt í WorldFeng. Þeir verða svo verðlaunaðir á næsta Landsmóti, ef þeir standast enn kröfur til afkvæmaverðlauna.

 

Nafn Uppruni Ae. Ae. án skeiðs Fj. afkvæma
Forkur Breiðabólsstað 125 119 6
Organisti Horni I 123 115 7
Knár Ytra-Vallholti 121 112 12
Dagur Hjarðartúni 121 120 6
Sólbjartur Flekkudal 118 115 9
Hringur Gunnarsstöðum I 115 122 19
Hreyfill Vorsabæ II 114 127 21
Lexus Vatnsleysu 112 118 7

 

Tekið skal fram að stóðhestar í öðrum löndum sem eru að nálgast eða hafa náð lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi eru ekki með á listanum. Listinn miðast við þá hesta sem gætu komið fram með afkvæmahóp á næsta Landsmóti. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar