Lilja Rún er Íslandsmeistari barna í fjórgangi

  • 21. júní 2020
  • Fréttir

Lilja Rún Sigurjónsdóttir Íslandsmeistari barna

Það er engu til logið þegar sagt er að úrslit í barnaflokki hafi verið spennandi og knaparnir áberandi prúðir og hestakostur góður. Það var Lilja Rún Sigurjónsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari í þessari grein og er því Íslandsmeistari í fjórgangi barna árið 2020. En þrír efstu knapar komu úr Hestamannafélaginu Fáki.

Í öðru sæti varð Sigurbjörg Hegadóttir  á Elvu frá Auðsholtshjáleigu og í því þriðja Ragnar Snær Viðarsson á Rauðku frá Ketilsstöðum.

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Lilja Rún Sigurjónsdóttir / Þráður frá Egilsá 6,47
2 Sigurbjörg Helgadóttir / Elva frá Auðsholtshjáleigu 6,43
3 Ragnar Snær Viðarsson / Rauðka frá Ketilsstöðum 6,37
4 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson / Gjafar frá Hæl 6,20
5 Oddur Carl Arason / Órnir frá Gamla-Hrauni 6,10
6 Kolbrún Sif Sindradóttir / Orka frá Stóru-Hildisey 6,07

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link