Litlu topparnir rúlla í gang
Nokkrir spennandi ungir stóðhestar undan frægum hryssum og stóðhestum voru frumtamdir í haust. Flestir eru, eftir nokkurra vikna tamningu, taldir efnilegir og sumir verulega álitlegir, þótt of snemmt sé að fullyrða nokkuð um svo lítið tamin trippi. Reyndar eru til orðnar svo margar góðar undaneldishryssur í landinu, sem náð hafa frábærum árangri í kynbótadómi eða annarri keppni, að segja má að það séu vonarstjörnur í stóðhestum í öðru hverju hesthúsi á landinu. Í þeim hópi sem fór undir hnakk í haust eru meðal annarra:
Hákon frá Ragnheiðarstöðum, undan Álfi frá Selfossi og Hátíð frá Úlfsstöðum sem fékk 10,0 fyrir tölt á LM2006. Bjartur frá Lynghóli, rauðblesóttur, sokkóttur, undan Leistu frá Lynghóli og Þóroddi frá Þóroddsstöðum. Leista var efsta 4 vetra hryssan á LM2006. Toppur frá Auðsholtshjáleigu, undan Álfasteini frá Selfossi og Trú frá Auðsholtshjáleigu, sem er móðir Tórs, Tóns, Tíbráar og Arnodds. Werner frá Feti, undan Orra frá Þúfu og Vigdísi frá Feti, sem stóð efst í elsta flokki hryssna á LM1998. Hún er móðir Vilmundar frá Feti og sex annarra 1. verðlauna hrossa.
Ljósálfur frá Hvítanesi, undan Álfi og Birtu frá Ey, sem var keppnishryssa í tölti hjá Gísla Gíslasyni um skeið. Um Ljósálf hefur verið stofnað var hlutafélag. Váli frá Þóroddstöðum, undan heiðursverðlaunahryssunni Hlökk frá Laugarvatni og Stála frá Kjarri, sem stóð efstur í elsta flokki stóðhesta á LM2006. Úlfhéðinn frá Skeiðháholti, undan heiðurshryssu Suðurlands Brúðu frá Gullberastöðum og Vilmundi frá Feti. Og síðast en ekki síst Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum, undan Orra frá Þúfu og Álfadísi frá Selfossi. Marga fleiri mætti nefna. Ábendingar um spennandi fola í tamningu er lík vel þegnar á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári