Litrík hross alltaf vinsæl

  • 16. nóvember 2012
  • Fréttir
Litrík hross alltaf vinsæl

Nú er sá tími þegar sem mest er um að vera í útflutningi.  Á haustin er stórmótum sumarsins lokið og hryssurnar komnar heim frá stóðhestum. Folöldin mörg hver búin að ná settum aldri til útflutnings, eða fjögurra mánaða. Í október höfðu höfðu 997 hross verið flutt út á árinu, 157 stóðhestar, 354 geldingar og 466 hryssur.  Stór hluti þeirra fór til Þýskalands eða tæplega 40%. Síðan þá hafa tvær flugvélar í viðbót flutt fleiri hross út og eiga um 8 vélar eftir að fara það sem eftir er árs.

Eiðfaxi kíkti í heimsókn upp í Fák og spjallaði við Kristbjörgu Eyvindsdóttur um útflutning íslenskra hrossa en mikið er um að vera hjá þeim þessa dagana. Þar var fullt hús af hestum og gætti margra litbrigða. Þar á meðal mátti sjá skrauthryssuna Sylvíu Nótt frá Neðra Seli, sem hefur nú lagt land undir fót í leit að frægð og frama í Danmörku.  Að sögn Kristbjargar er mikið um að litskrúðug hross fari út „Stundum er ógrynni af skjóttu eins og núna, stundum allt fullt af gráu og leirljósu og stundum bara einlitt. Þetta skiptist svolítið niður eftir hópum en útlendingar sækja augljóslega í litrík hross.” 

Útflutningurinn fer þannig fram að hrossin eru flutt til útflutningsaðilans. Þá kemur dýralæknir og heilbrigðisskoðar hrossin og skráir þær upplýsingar í svokölluð hestavegabréf. Stundum eru hestarnir sendir í sérskoðun að ósk eigenda og þá eru þeir sendir í beygjupóf og röntgenmyndatöku. Eftir þetta koma eftirlitsdýralæknarnir sem fara yfir það að allt sé rétt í vegbréfum, skráðir litir, kyn og fleira.  Skýrslur eru svo gerðar um hvern hest.  Svo er haldið út á völl tveimur klukkutímum fyrir brottför þar sem hestarnir fara aftur í gegn um eftirlit og eru svo lestaðir og þá tilbúnir fyrir brottför. Í Evrópu geta hrossin haldið á vit nýrra eigenda fljótlega eftir lendingu en í Ameríku þurfa þau að vera í sóttkví í nokkra daga.

Best er fyrir hrossin að koma erlendis að hausti eða vetri til, sérstaklega ef þau eru á leið til heitari landa.  Það gefur þeim tíma til að venjast hitanum og flugunum þegar vora tekur. Þá verða þau betur í stakk búin til að takast á við nýjar aðstæður og hitastig sem þau hafa ekki vanist hérna heima. 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link