Lítur stolt tilbaka á ferlið að HM 2023

  • 31. desember 2023
  • Aðsend grein

Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýárs með þökk fyrir árið sem nú er liðið, um leið óska ég hestamönnum nær og fjær hamingju og velfarnaðar á árinu 2024.

Það er vaninn að líta yfir farinn veg á þessum tímamótum og varpa ég kastljósinu alfarið á yngri flokkana að þessu sinni.  Í janúar 2020 tók ég við U21 árs landsliðshópnum og þar áður hafði landsliðshópur verið starfræktur og grunnur þessa starfs verið lagður af frábæru fólki.

Sjálf var ég efasemdarmanneskja um það á þeim tíma að landsliðshópur í hestaíþróttum, sem starfaði allt árið um kring, væri eitthvert vit. Við höfum í höndunum einstaklingsíþrótt þar sem venjan hafði verið sú að hver og einn héldi sig í sínu horni og hafði bara hreinlega nóg með sig.

Þetta þarf ég eðli málsins samkvæmt að taka tilbaka. Afreksstarf líkt og U21 árs landslið Íslands sem og hæfileikamótun er gríðarlega mikilvægt. Þar koma saman hestaíþróttamenn sem nú þegar hafa stimplað sig inn með frábærum árangri. Þeir fá síðan gott aðhald og hjálp til að halda áfram að þróa sig. Samkeppnin er gríðarleg og þar er það hið krefjandi verkefni landsliðsþjálfara í mínu tilviki að ákveða hvaða áherslur liggja að baki valinu hverju sinni.

Úrtak afreksknapa á aldrinum 16 – 21 árs er gríðarstórt hér á Íslandi og er ég oft að skoða milli 30 – 40 knapa til að velja í lokahóp 12 – 18 knapa sem ég vinn í framhaldinu áfram með sem U21 árs landsliðshóp hvers árs.

Í byrjun árs 2023 var það morgunljóst að Heimsmeistaramót íslenska hestsins yrði haldið í Hollandi og þar ættum við einungis 5 sæti fyrir ungmenni á mótinu.

Sýningar unglinga og ungmenna á þessu ári voru á margan hátt ógleymanlegar. Knapar voru að toppa sig á móti eftir móti. Samkeppnin mikil og efstu knapar í öllum greinum á Íslandsmótunum okkar (unglinga og ungmenna) hefðu allir gert stórgóða hluti á Heimsmeistaramótinu.  Þegar Ísland kom á Heimsmeistaramót með 5 afreksknapa í ungmennaflokk vissi ég að ef bæði knapar og hestar kæmu tilbúnir í verkefnið þá stæðum við vel að vígi. Uppskera þessara 5 hestaíþróttamanna voru 6x gullverðlaun, 1x silfurverðlaun, 1x 4.sæti, 2x 5.sæti og 1x 6.sæti.

Íslendingar gátu gengið rígmontnir frá borði á þessu Heimsmeistaramóti og hafði kollegi minn úr öðru landsliði góðlátlega á orði þegar íslenski þjóðsöngurinn glumdi í hátölurunum enn einu sinni að hann væri aðeins orðinn leiður á þessum tónum. Það þótti okkur íslendingum nú ekki leiðinlegt og íslenska stúkan var stórkostleg allt mótið! Stuðningurinn var áþreifanlegur og gerði alla upplifun enn sterkari. Einnig er vert að minnast á frábæra styrktaraðila landsliðsins sem gera þessa vegferð alla mögulega. Allir hlutaðeigandi hafið heila þökk fyrir.

Ég lít stolt tilbaka á ferlið að HM 2023 í Hollandi. Ekkert ferli er fullkomið eða hafið yfir gagnrýni en árangurinn var frábær.  Staðreyndin er sú að á þessu móti voru yfirburðir íslensku ungmennanna miklir. Afreksstarf LH er að skila sér og þar má einnig nefna hæfileikamótun sem er frábær undanfari áður en þau ávinna sér rétt til koma inní U21 árs landsliðshópinn.  Á næsta heimsmeistaramóti eigum við 7 sæti fyrir ungmenni því að tveir af heimsmeisturunum okkar verða áfram ungmenni á næsta móti.

Hinar þjóðirnar munu koma tvíefldar á næsta mót og er tilhlökkunarefni að mæta þeim aftur árið 2025.

Mikilvægt er að halda áfram vel á spöðunum fram að næsta móti og sannið til – klukkan er byrjuð að telja niður. Á árinu 2024 er verkefni landsliðsins Norðurlandamót haldið í Danmörku og þar munum við mæta tilbúin til leiks.

Gleðilegt hestaíþróttaár og njótið samverunnar með þessari stórkostlegu skepnu sem hesturinn okkar er og þeirrar gleði sem hann veitir okkur á hverjum degi.

Hekla Katharína Kristinsdóttir U21 árs landsliðsþjálfari.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link