Ljósin kveikt og útvarp í gangi
Matvælastofnun minnir dýraeigendur á að huga vel að dýrum sínum á meðan á flugeldaskotum stendur á áramótum. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta þau valdið slysum á sjálfum sér og öðrum við slíkar aðstæður. Hægt er að fyrirbyggja slys með því að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana fyrir gamlárskvöld og þrettándann.
- Hestum eða búfénaði sem komnir eru á gjöf í húsum skal gefið vel, hafa ljósin kveikt og útvarp í gangi.
- Gott er að gefa vel hey hestum eða búfénaði sem eru úti við eða á útigangi og halda þeim á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þá. Ef hægt er að setja hesta inn er það öruggast.
- Eigendur ættu helst að fylgjast með hestunum ef því er komið við, eða alla vega vitja þeirra sem fyrst eftir lætin.
Almenn notkun skotelda er einungis heimil á tímabilinu 28. desember til 6. janúar og þá aðeins frá klukkan tíu að morgni til tíu að kvöldi, að nýársnótt undanskilinni, sbr. reglugerð um skotelda. Í reglugerðinni er líka tilgreint að sérstakt tillit skuli tekið til dýra og að bannað sé að nota skotelda við gripahús.
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Aðalheiður og Flóvent vörðu titilinn