Ljósmyndakeppni Eiðfaxa í fullum gangi
Við minnum á Ljósmyndakeppni Eiðfaxa en hún er í fullum gangi og lýkur henni þann 23. nóvember nk. Við köllum eftir fallegum myndum frá áhugaljósmyndurum í þessa vinsælu samkeppni.
Vegleg verðlaun verða í boði fyrir bestu myndina, auk glæsilegra aukaverðlauna.
Reglur:
Myndirnar skulu vera amk. 2 mb að stærð og sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda í fimm ljósmyndir.
Síðasti skiladagur mynda er föstudaginn 23. nóvember nk.
Innsendar myndir eru eign höfunda, en Eiðfaxi áskilur sér rétt til að birta þær í jólablaði 2012 og tölublöðum næsta árs
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH