Ljósmyndakeppni Eiðfaxa

  • 23. október 2012
  • Fréttir
Ljósmyndakeppni Eiðfaxa

Við minnum á Ljósmyndakeppni Eiðfaxa en hún er í fullum gangi og lýkur henni þann 23. nóvember nk. Löng hefð er fyrir því að Eiðfaxi standi fyrir ljósmyndakeppni á haustin og köllum við nú eftir fallegum myndum frá áhugaljósmyndurum í þessa vinsælu samkeppni. Nú er því um að gera að leita uppi vinningsskotið í myndasafni ársins eða arka út í haustið með myndavél að vopni og fanga fagra mynd af glæstum fákum.

Vegleg verðlaun verða í boði fyrir bestu myndina, auk  glæsilegra aukaverðlauna.
 
Reglur:
 
Myndirnar skulu vera amk. 2 mb að stærð og sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda í fimm ljósmyndir.
 
Síðasti skiladagur mynda er föstudaginn 23. nóvember nk.
 
Innsendar myndir eru eign höfunda, en Eiðfaxi áskilur sér rétt til að birta þær í jólablaði 2012 og tölublöðum næsta árs.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link