Ljósmyndasamkeppni Eiðfaxa
Löng hefð er fyrir því að Eiðfaxi standi fyrir ljósmyndakeppni á haustin og köllum við nú eftir fallegum myndum í þessa vinsælu ljósmyndakeppni. Nú er því um að gera að leita uppi vinningsskotið í myndasafni ársins eða arka út í haustið með myndavél að vopni og fanga fagra mynd af glæstum fákum.
Vegleg verðlaun verða í boði fyrir bestu myndina, auk aukaverðlauna sem auglýst verða síðar.
Reglur:
Myndirnar skulu vera amk. 2 mb að stærð og sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda í fimm ljósmyndir.
Síðasti skiladagur mynda er föstudaginn 23. nóvember nk.
Innsendar myndir eru eign höfunda, en Eiðfaxi áskilur sér rétt til að birta þær í jólablaði 2013 og tölublöðum næsta árs.
Myndin „Vinarþel“ hér fyrir neðan lenti í öðru sæti í keppninni í fyrra. Hún er tekin af Sunnu Gautadóttur.

Myndin af leik ungra stóðhesta sem lenti í þriðja sæti var tekin af Ingu Stumpf.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH