Ljósmyndasamkeppni Hestablaðsins

  • 24. október 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hestablaðið kynnir ljósmyndasamkeppni 2012. Keppnin er bæði fyrir áhugafólk og atvinnuljósmyndara.

Hestablaðið kynnir ljósmyndasamkeppni 2012. Keppnin er bæði fyrir áhugafólk og atvinnuljósmyndara. Tilgreina skal við innsendar myndir hvort þær eru teknar af áhuga- eða atvinnuljósmyndari. Veitt verða þrenn verðlaun í hvorum flokki fyrir bestu myndirnar. Aðeins eru teknar inn myndir í stafrænu formi og skal senda þær á netfang: [email protected] fyrir 15. nóvember. ATH! Myndirnar verða að vera í fullri upplausn. Tíu bestu myndirnar verða birtar í Hestablaðinu og áskilur blaðið sér rétt til að birta þær án endurgjalds.

Myndina með fréttinni tók Steinþór Runólfsson af Fanneyju Hrund Hilmarsdóttur og merfolaldinu Hetju frá Hellu sem fæddist í sumar og er í eigu Steinþórs og Fanneyjar Hrundar. Þau eru einnig ræktendur. Móðir Hetju er Hrefna frá Hellu en pabbinn er Þróttur frá Hamarshjáleigu. Myndin er að sjálfssögðu í ljósmyndasamkeppni Hestablaðsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link