Loftur sigurvegari B úrslita í fimmgangi
Loftur Breki Hauksson tryggði sér þátttökurétt í A úrslitum í fimmgangi í unglingaflokki eftir að hafa unnið B úrslitin á Mánadís frá Litla-Dal með 6,69 í einkunn. Háðu þau drengilega baráttu við Elsu Kristínu Grétarsdóttur sem endaði sjöunda á Hrund frá Hólaborg en nokkrar kommur skildu þau að.
Í dag, laugardaginn 25.júlí, er sannkallaður B-úrslita dagur á Íslandsmóti barna og unglinga því B-úrslit í hinum ýmsu keppnisgreinum eru framan af degi en keppnisdagskrá lýkur svo með 100 metra skeiði sem hefst klukkan 17:30. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.
B úrslit – Fimmgangur F2 – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Loftur Breki Hauksson Mánadís frá Litla-Dal 6,69
7 Elsa Kristín Grétarsdóttir Hrund frá Hólaborg 6,64
8 Ragnar Dagur Jóhannsson Öxi frá Hvammi 5,98
9 Gabríela Máney Gunnarsdóttir Koltur frá Stóra-Bakka 5,55
10 Svava Marý Þorsteinsdóttir Sæmd frá Syðra-Langholti 5,38
Loftur sigurvegari B úrslita í fimmgangi
Hæst dæmdi hestur í heimi