Logadís komin inná Landsmót
Í kvöld lauk fyrsta degi kynbótasýningarinnar á Brávöllum á Selfossi. Níu hross hlutu fulnaðardóm þar af fengu fimm fyrstu verðlaun. Logadís frá Syðra – Garðshorni náði einkunna lágmarki inná Landsmót en hún hlaut 8,36 í aðaleinkunn; 8,48 fyrir sköpulag og 8,36 fyrir hæfileika. Sýnandi Logadísar var Guðmundur Björgvinsson. Guðmundur og Logadís hlutu 9,0 fyrir skeið enda svakasprettur.
Árni Björn Pálsson mætti með hana Stöku frá Koltursey í dóm í dag. Staka og Árni höfðu fengið mikla athylgi á sýningum í vetur. Staka hlaut 9,0 fyrir tölt og 9,0 fyrir brokk. Staka hlaut fyrir hæfileika 7,98, byggingu 7,66 og í aðaleinkunn 7,85.
Spennandi verður að fylgjast með næstu dögum á Selfossi og greinilegt að knapar og hestar láta ekki smá vind halda aftur að sér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH