Lokakvöld Meistaradeildar á föstudegi!

  • 6. mars 2020
  • Fréttir

 Lokakvöld Meistaradeildar í hestaíþróttum hefur verið fært aftur um einn dag en það mun fara fram föstudaginn 27. mars í Samskipahöllinni. Þrjú mót eru eftir í Meistaradeildinni, en fimm greinar. Næsta keppni fer fram á sunnudaginn en þá verður keppt í gæðingafimi. Keppni hefst kl. 12:10 og um að gera að skella sér í sunnudagsrúnt í Samskipahöllina og horfa á knapa og hesta leika listir sínar.

 

Dagskrá:

8.mars – Gæðingafimi, Samskipahöllin

14.mars – Skeiðmót, Selfoss

27.mars – Lokamót, tölt og flugskeið, Samskipahöllin

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link