Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum Lokakvöld Vesturlandsdeildarinnar á föstudaginn

  • 27. apríl 2022
  • Fréttir
Keppt verður innandyra í tölti og utandyra í skeiði

Föstudaginn 29. apríl fer fram lokakvöld Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum og það má svo sannarlega búast við veislu. Keppt verður í skeiði í boði Hestaflutninga B. Kóngs og svo í tölti T1 í boði Export-hesta. Byrjað verður á 100 m. skeiði kl 18:00 og er það utanhúss en töltkeppnin hefst kl 19:30 inni í reihöll. Að keppni lokinni verður lokahóf í boði Líflands og munu verða atriði í reiðhöllinni sem enginn má missa af.

Dagskrá með fyrirvara um breytingar:

18:00-19:00 Skeið 100 m – tveir sprettir.
19:30-21:00 Tölt forkeppni
21:00-21:15 Hlé
21:15-21:40 Úrslit í tölti og verðlaunaafhending.
Ungir knapar á Vesturlandi
Heiðranir og atriði
Fólk, hestar, gleði og söngur til kl. 24:00

Aðgangseyrir á lokakvöldið er 2000 krónur en frítt er inn fyrir 12 ára og yngri. Hægt verður að kaupa veitingar á staðnum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link