Meistaradeild KS í hestaíþróttum Lokakvöldið í Meistaradeild KS framundan – Ráslistar klárir

  • 6. maí 2021
  • Fréttir

Mette mun reyna að verja titilinn í einstaklingskeppni mynd: Birgit Zimmermann

Lokakvöld Meistaradeildar KS í hestaíþróttum fer fram annað kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þegar keppt verður í tölti (T1) og flugskeiði í gegnum höllina. Á morgun ræðst því hver það er sem sigrar einstakingskeppni deildarinnar og hvaða lið fer með sigur af hólmi í liðakeppni.

Það munar litlu á efstu liðum og ennþá eru næg stig í pottinum þar líkt og í einstaklingskeppninni. Á síðasta keppnistímabili var það Mette Mannseth sem vann einstaklingskeppnina og lið Þúfna sem sigraði í liðakeppni. Fyrir lokakvöldið er Mette í efsta sæti og lið Þúfna örfáum stigum ofar en lið Íbishóls í efsta sæti. Hægt er að skoða stöðuna með því að smella hér.

Margt góðra hrossa er að finna á ráslistum bæði í tölti og skeiði og ljóst að hart verður barist.

Hægt er að horfa á beina útsendingu hjá TindastólTV sem við hvetjum alla áhugamenn um hestaíþróttir að nýta sér. Blaðamenn Eiðfaxa munu a.m.k. sitja límdir við skjáinn.

 

TÖLT

  1. Þórdís Inga Pálsdóttir og Fjalar frá Vakurstöðum / HRÍMNIR
  2. Randi Holaker og Þytur frá Skáney / UPPSTEYPA
  3. Artemisia Bertus og Filma frá Tunguhálsi II / EQUINICS
  4. Jóhann Magnússon og Bogi frá Bessastöðum / LEIKNIR
  5. Elvar Einarsson og Muni frá Syðra-Skörðugili / STORM RIDER
  6. Þorsteinn Björn Einarsson og Fannar frá Hafsteinsstöðum / HOFSTORFAN
  7. Magnús Bragi Magnússon og Óskadís frá Steinnesi / ÍBISHÓLL
  8. Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási/ ÞÚFUR
  9. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Krafla frá Hamarsey / EQUINICS
  10. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Stórstjarna frá Akureyri/ HOFSTORFAN
  11. Guðmar Þór Pétursson og Sókrates frá Skáney / LEIKNIR
  12. Barbara Wenzl og Kná frá Engihlíð / ÞÚFUR
    Hlé 5 mín
  13. Þórarinn Eymundsson og Þrá frá Prestsbæ / HRÍMNIR
  14. Sigursteinn Sumarliðason og Skráma frá Skjálg / ÍBISHÓLL
  15. Ísólfur Líndal Þórisson og Sæhvönn frá Dvergasteinum / UPPSTEYPA
  16. Arndís Brynjólfsdóttir og Hraunar frá Vatnsleysu / STORM RIDER
  17. Mette Mannseth og List frá Þúfum / ÞÚFUR
  18. Vera Evi Schneiderchen og Ramóna frá Hólshúsum / EQUINICS
  19. Sigrún Rós Helgadóttir og Týr frá Jarðbrú / HOFSTORFAN
  20. Guðmar Freyr Magnússon og Sigursteinn frá Íbishóli / ÍBISHÓLL
  21. Fanney Dögg Indriðadóttir og Trygglind frá Grafarkoti / HRÍMNIR
  22. Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti / STORM RIDER
  23. Hans Kjerúlf og Elsa frá Jaðri / UPPSTEYPA
  24. Konráð Valur Sveinsson og Gammur frá Aðalbóli / LEIKNIR

SKEIÐ

  1. Leynigestur / UPPSTEYPA
  2. Líney María Hjálmarsdóttir og Brattur frá Tóftum / HRÍMNIR
  3. Bergrún Ingólfsdóttir og Viðar frá Hvammi 2 / ÞÚFUR
  4. Guðmar Freyr Magnússon og Brimar frá Varmadal / ÍBISHÓLL
  5. Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum / LEIKNIR
  6. Sigrún Rós Helgadóttir og Spyrna frá Þingeyrum / HOFSTORFAN
  7. Bjarni Jónasson og Hrappur frá Sauðárkróki / STORM RIDER
  8. Valdís Björk Guðmundsdóttir og Gnýr frá Brekku / EQUINICS
  9. Gísli Gíslason og Kalsi frá Þúfum / ÞÚFUR
  10. Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni / HRÍMNIR
  11. Elvar Einarsson og Segull frá Halldórsstöðum/ STORM RIDER
  12. Sigursteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ / ÍBISHÓLL
  13. Elvar Logi Friðriksson og Surtsey frá Fornusöndum / UPPSTEYPA
  14. Þorsteinn Björn Einarsson og Fossbrekka frá Brekkum III / HOFSTORFAN
  15. Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II / LEIKNIR
  16. Mette Mannseth og Vívaldi frá Torfunesi / ÞÚFUR
  17. Leynigestur / STORM RIDER
  18. Guðmar Þór Pétursson og Hrafnkatla frá Ólafsbergi / LEIKNIR
  19. Randi Holaker og Þórfinnur frá Skáney / UPPSTEYPA
  20. Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri 2 / EQUINICS
  21. Freyja Amble Gísladóttir og Dalvík frá Dalvík / ÍBISHÓLL
  22. Leynigestur / HRÍMNIR
  23. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Frekja frá Dýrfinnustöðum / HOFSTORFAN
  24. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Ómur frá Litla-Laxholti

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link