Lokamót Meistaradeildar í kvöld – ráslistar

  • 7. apríl 2011
  • Fréttir
Lokamót Meistaradeildar í kvöld - ráslistar

Í kvöld í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, fer fram Lokamót Meistaradeildarinnar þar sem keppt verður í slaktaumatölti og skeiði í gegnum höllina. Mótið hefst kl. 19 á slaktaumatölti og að því loknu verður keppt í skeiði í gegnum höllina.

Þetta er í fimmta sinn sem keppt er í Slaktaumatölti í deildinni og eru einungis tveir knapar sem hafa sigrað þessa grein og er annar þeirra enn í deildinni en það er Viðar Ingólfsson, Hrímnir, sem hefur sigrað í þrjú skipti af fjórum sem keppt hefur verið í greininni. Hann sigraði í öll skiptin á gæðingnum Tuma frá Stóra-Hofi.

Slaktaumatölt
1       Guðmundur Björgvinsson  Top Reiter / Ármót      Hrafndynur frá Hákoti
2       Sigurður Vignir Matthíasson     Málning / Ganghestar    Þrá frá Tungu
3       John Kristinn Sigurjónsson      Málning / Ganghestar    Kraftur frá Strönd II
4       Sveinn Ragnarsson       Árbakki / Norður-Götur  Ögri frá Baldurshaga
5       Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót      Alur frá Lundum
6       Vignir Siggeirsson      Hrímnir Dýrð frá Hafnarfirði
7       Anna Valdimarsdóttir    Málning / Ganghestar    Adam frá Vorsabæjarhjáleigu
8       Olil Amble      Lýsi    Kjarkur frá Ingólfshvoli
9       Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur  Glymur frá Flekkudal
10      Viðar Ingólfsson        Hrímnir Aspar frá Fróni
11      Sigurður Sigurðarson    Lýsi    Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 1
12      Sigurbjörn Bárðarson    Lýsi    Jarl frá Mið-Fossum
13      Þórdís Erla Gunnarsdóttir       Auðsholtshjáleiga       Stund frá Auðsholtshjáleigu
14      Hulda Gústafsdóttir     Árbakki / Norður-Götur  Sveigur frá Varmadal
15      Bylgja Gauksdóttir      Auðsholtshjáleiga       Grýta frá Garðabæ
16      Elvar Þormarsson        Spónn.is        Njála frá Velli
17      Arnar Bjarki Sigurðarson        Hrímnir Kamban frá Húsavík
18      Henna Johanna Sirén     Spónn.is        Bjarkar frá Blesastöðum 1A
19      Hekla Katharína Kristinsdóttir  Auðsholtshjáleiga       Vígar frá Skarði
20      Sigursteinn Sumarliðason        Spónn.is        Arnar frá Blesastöðum 2A
21      Bergur Jónsson  Top Reiter / Ármót      Valsi frá Skarði

Fljúgandi skeið
1       Þórdís Erla Gunnarsdóttir       Auðsholtshjáleiga       Lilja frá Dalbæ
2       Bergur Jónsson  Top Reiter / Ármót      Hörður frá Reykjavík
3       Bylgja Gauksdóttir      Auðsholtshjáleiga       Ársól frá Bakkakoti
4       Sveinn Ragnarsson       Árbakki / Norður-Götur  Storð frá Ytra-Dalsgerði
5       Elvar Þormarsson        Spónn.is        Muska frá Syðri-Hofdölum
6       Sigurður Óli Kristinsson        Lýsi    Þruma frá Norður-Hvoli
7       Henna Johanna Sirén     Spónn.is        Guðfinna frá Kirkjubæ
8       Sigurður Vignir Matthíasson     Málning / Ganghestar    Zelda frá Sörlatungu
9       Vignir Siggeirsson      Hrímnir Þröstur frá Hvammi
10      Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur  Everest frá Borgarnesi
11      Teitur Árnason  Árbakki / Norður-Götur  Veigar frá Varmalæk
12      Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót      Funi frá Hofi
13      Guðmundur Björgvinsson  Top Reiter / Ármót      Gjálp frá Ytra-Dalsgerði
14      Valdimar Bergstað       Málning / Ganghestar    Glaumur frá Torfufelli
15      Arnar Bjarki Sigurðarson        Hrímnir Birtingur frá Bólstað
16      Viðar Ingólfsson        Hrímnir Segull frá Mið-Fossum 2
17      Sigurbjörn Bárðarson    Lýsi    Flosi frá Keldudal
18      John Kristinn Sigurjónsson      Málning / Ganghestar    Isabel frá Forsæti
19      Edda Rún Ragnarsdóttir  Auðsholtshjáleiga       Birtingur frá Selá
20      Sigurður Sigurðarson    Lýsi    Freyðir frá Hafsteinsstöðum
21      Sigursteinn Sumarliðason        Spónn.is        Gjafar frá Þingeyrum

Forsala aðgöngumiða er í fullum gangi í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi og er aðgangseyrir 1.500 krónur.

Á heimasíðu deildarinnar undir liðin fer fram netkosning þar sem áhangendur deildarinnar geta valið sitt uppáhalds lið og knapa. Valið á liðinu/knapanum fer þannig fram að netkosningin hefur 50% vægi, dómarar 25% vægi og stjórn deildarinnar 25% vægi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link