Lokamót Meistaradeildarinnar
Árni Björn leiðir einstaklingskeppnina
Á lokamóti Meistaradeildarinnar sem haldið verður föstudaginn 4 apríl verður keppt í slaktaumatölti og fljúgjandi skeiði. Mótið hefst kl. 18:30 og húsið opnar kl. 17.00.
Aðgangseyrir á mótið er 1.500 krónur fyrir þá sem eru ekki með ársmiða og er forsala aðgöngumiða í fullum gangi í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Eins og áður sagði hefst mótið klukkan 18:30.
Það má gera ráð fyrir harðri keppni í báðum greinum en reikna má með að margir af fljótustu vekringum landsins verði skráðir til leiks í skeiðinu og verður spennandi að sjá þá bruna í gegnum húsið. Í slaktaumatöltinu hefur heyrst að öllu verður tjaldað til og það stefnir í allra sterkustu keppni í slaktaumatölti til þessa í deildinni ef ekki á landinu. Ráslistar munu liggja fyrir á miðvikudag.
Spennan í stigakeppninni fyrir lokamót Meistaradeildarinnar er gífurleg. Eftir veisluna sem við fengum að njóta í úti-skeiðgreinum deildarinnar, laugardaginn 23 mars s.l., opnaðist allt mótið bæði í liða- og einstaklingskeppninni. Þar sem keppt verður í tveimur greinum á úrslitakvöldinu eru 24 stig í boði fyrir fyrsta sætið í báðum greinum og er því ljóst að einstaklingskeppnin verður gífurlega spennandi. Ekki er spennan minni í liðakeppninni þar sem flest liðin hafa möguleika á sigri.
Í fyrra vann Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II slaktaumatöltið með einkunina 8,42, í öðru sæti var Valdimar Bergstað á Týr frá Litla-Dal með einkuninna 8,17 og í þriðja sæti sæti Eyjólur Þorsteinsson og Hlekkur frá Þinganesi með einkuninna 8,08.
Í fljúgandi skeiði sigraði Ragnar Tómasson á Ísabel frá Forsæti á tímanum 5,90, Árni Björn Pálsson og Fróði frá Langholti urðu í öðru sæti með tímann 5,96 og Bjarni Bjarnason og Hera frá Þóroddstöðum urðu í þriðja sæti á tímanum 5,99.
Á föstudaginn munu svo áhorfendur taka þátt í að kjósa „Fagmannlegasta knapann“ en þann titil vann Guðmundur Björgvinsson í fyrra og einnig verður kosið um „Skemmtilegasta liðið“ en þann titil vann lið Topreiter/Ármóts í fyrra.
Styttu haustið með EiðfaxaTV