„Lotta á sér enga líka“

  • 29. júní 2012
  • Fréttir
"Lotta á sér enga líka"

Hans Þór Hilmarssonisigraði B-úrslit A-flokks gæðinga með glæsibrag á vekringnum Lottu frá Hellu. Hlutu þau meðal annars 8,96 fyrir skeið og 8,86 fyrir vilja og geðslag.Hans var staddur í fótaskoðun með Lottu ásamt kærustu sinni, Lóu Dagmar Smáradóttur, þegar blaðamaður tók þau á tal.

Lotta er 11 vetra hryssa í eigu Lóu Dagmar, hún kemur úr ræktun föður hennar Smára Gunnarssonar. Lotta var sýnd fyrir kynbótadómi í fyrra hlaut þá flotta 8,36 fyrir kosti, þar á meðal einkunnina 9,5 fyrir skeið. „Hún er næm og viljug með mjög gott eðlislægt skeið,“ sagði Hans um Lottu sem hefur þjálfað hryssuna í tvö ár. „Hún á enga sér líka,“ bættir svo Lóa Dagmar við. Þess má einnig til gamans geta að Lotta er sammæðra systir Isabel frá Forsæti, einum þekktustu vekringum landsins.

Inntur eftir skoðunum á keppinautana í A-flokk lét Hans lítið upp. „Mér líst vel á úrslitin, þar er mikið af góðum og sterkum hestum,“ sagði hann en A-úrslit fara fram á sunnudag kl. 14.15. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link