Lukku-Blesi og Christina Lund Norðurlandameistarar
Þau voru ákaflega spennandi A-úrslitin í B-flokki þar sem hart var barist um sigur og stóð baráttan helst á milli Nátthrafns frá Varmalæk á Þórarni Eymundssyni og Lukku-Blesa frá Selfossi og Christinu Lund. Nátthrafn leiddi að lokinni sýningu á hægu tölti og Lukku-Blesi tók svo forystu eftir brokk en þau voru hnífjöfn á næstu atriðum. Það var ekki fyrr en allar einkunnir höfðu skilað sér í hús að í ljós kom að sigurvegarinn er Lukku-Blesi frá Selfossi með 8,85 í einkunn en Nátthrafn hlaut 8,83, Norðurlandameistaratitill í B-flokki fer því til Noregs.
Agnar frá Margrétarhofi og Reynir Örn Pálmason stóðu sig þá einnig vel og urðu í þriðja sæti með einkunnina
| A úrslit | |||
| Sæti | Hross | Knapi | Einkunn |
| 1 | Lukku-Blesi frá Selfossi | Christina Lund | 8,85 |
| 2 | Náttfari frá Varmalæk | Þórarinn Eymundsson | 8,83 |
| 3 | Agnar frá Margrétarhofi | Reynir Örn Pálmason | 8,72 |
| 4 | Hrímnir frá Vatnsleysu | Nicolina Marklund | 8,65 |
| 5 | Kári frá Ásbrú | Knút Lützen | 8,60 |
| 6 | Milljón fra Bergkåsa | Liv Runa Sigtryggsdottir | 8,56 |
| 7 | Varða frá Feti | Thea Hansen | 8,51 |
| 8 | Brekka frá Margrétarhofi | Jessica Hou Geertsen | 8,25 |
Lukku-Blesi og Christina Lund Norðurlandameistarar
Endurtók leikinn tíu árum seinna