Lumar þú á atriði?
Núna nálgast Laufskálarétt (27.sept) og þá verður eins og oftast áður einnig skemmtileg sýning á föstudagskvöldið (26.sept.) í reiðhöllinni, Svaðastaðir, á Sauðárkóki. Verið er að skipuleggja sýninguna en allir áhugasamir geta haft samband við Magnús Braga 898-6062 og Elisabeth 862-3788 ef þau luma á skemmtilegu atriði eða góðum hrossum sem geta komið fram. Einnig er hægt að senda þeim línu á [email protected]