Lúxusvandamál landsliðsstjóranna

  • 16. júlí 2011
  • Fréttir
Lúxusvandamál landsliðsstjóranna

Íslandsmótið sem lauk fyrr í dag var síðasta mótið þar sem þeir knapar sem sóttu eftir því að vera með í landsliði Íslands höfðu færi á að sanna sig. Á morgun munu landsliðsstjórar ganga á fund landliðsnefndar og tilkynna í fyrsta skipti endanlegt val á fullskipuðu landsliði.

Landsliðsstjórar hafa gefið sér síðastliðna mánuði til að kynna sér og fylgjast með knöpum og hestum þeirra sem sýndu áhuga á landsliðssæti. Eiðfaxi náði tali af Hafliða Halldórssyni eftir Íslandsmót í dag og sagði hann að mót helgarinnar hefði verið góður lokahnykkur á valinum enda hefði það í heild verið vel heppnað.

Undanfarna daga hafa þeir Einar Öder Magnússon verið á bæði þýska og sænska meistaramótinu og luku svo yfirferð sinni á Íslandsmóti. Hafliði sagði að 6-8 knapar hafi eygt von um þau fjögur landsliðssæti sem enn eru ómönnuð í liðinu og endanleg ákvörðun landsliðsstjóranna um hverjir hljóti þau, hafi ráðist í dag. “Á Íslandsmótinu komu fram nýjir og góðir vinklar þótt við hefðum verið búnir að gefa okkur ákveðna og góða mynd af landsliðinu. En á mótinu voru bæði góð hross og frábærir knapar og við höfum í raun verið að kljást við ákveðið lúxusvandamál vegna þess. Við tókum þó ákvörðun áðan og ætlum að sofa á henni í nótt,” sagði Hafliði.

Formleg kynning á Íslenska landsliðinu mun fara fram í Líflandi á þriðjudag en þá munu landsliðsstjórar tilkynna hvaða tíu knapar og hestar hafa verið valdir samkvæmt lykli sem fulltrúar Íslands í St. Radegund í ágúst. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link