Lýst vel á hugmynd Ingimars

  • 3. janúar 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Félag hrossabænda hefur tekið málið á dagskrá

Mér líst vel á þessa hugmynd Ingimars,“ segir Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda [sjá frétt hér á síðunni um „SöluFeng“]. „Við þurfum einfaldlega að leita allra leiða til að örva hrossasöluna og mér sýnist að þetta geti verið gott innleg í það. Félag hrossabænda hefur þegar tekið málið á dagskrá og vinna við það er hafin. Og þá göngum við út frá því að þetta verði gagnagrunnur í eigu Félags hrossabænda, sem yrði tengdur við WorldFeng. Aðalatriðið er að málinu verði fylgt eftir, sem þýðir að það þarf starfsmann til að sjá um gagnagrunninn. En þetta er allt á frumstigi og hugmyndin er ómótuð ennþá. Við munum vinna hana áfram í samstarfi við Ingimar,“ segir Kristinn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link