Maður á hesti fór niður um ís
Það getur verið gaman að ríða á ísilögðu vatni
Betur fór en á horfðist í morgun þegar maður og hestur fóru niður um ís á Hrístjörn við Dalvík, en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Knapanum tókst að koma sér á ísinn og halda hestinum uppi á meðan hann hringdi eftir hjálp. Nokkur viðbúnaður var á tjörninni og voru björgunarsveitarfólk og lögregla kölluð á staðinn.
Varðstjóri á Tröllaskaga sagði í samtali við mbl.is að það hefði komið þeim á óvart hve djúpt var á staðnum þar sem félagar fóru niður, það var utarlega í vatninu en ekki í því miðju. Hann segir einnig að björgunin hafi tekið nokkuð á og hafi staðið tæpt um tíma.
Hvorki manni né hesti virðist þó hafa orðið meint af og því óhætt að segja að betur hafi farið en útlit var fyrir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH