Mæðgur í unglingaflokki
Gerst hefur að feðgar eða feðgin etji saman kappi á keppnisbrautinni en ekki er eins algengt að mægður eða mæðgin hittist þar. Í unglingaflokki á LM2018 voru mæðgurnar Dögg frá Breiðholti Gbr. og Daggrós frá Hjarðartúni skráðar til leiks ásamt knöpum sínum Svandísi Rós Treffer Jónsdóttur og Önnu Maríu Bjarnadóttur. Þær segja mæðgurnar að mörgu leyti líkar, báðar séu tilbúnar að vinna fyrir knapa sinn og þær hafi þægilegan vilja.
Daggrós, sem er undan Glym frá Flekkudal, er þó ekki móðurbetrungur því hún er einungis 6 vetra og er að stíga sín fyrstu skref á keppnisbrautinni á meðan Dögg er mjög hátt dæmd kynbótahryssa. Dögg sigraði flokk 5 vetra hryssna á LM2006 á Vindheimamelum með 8,61 í aðaleinkunn og hlaut 8,44 í einkunn í dag og sæti í milliriðlum.
Þess má einnig geta að Dagur frá Hjarðartúni er einnig undan Dögg og Sæ frá Bakkakoti keppir hann í ungmennaflokki á LM2018 með knapa sínum Önnu Bryndísi Zingheim.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH