Magni í Árgerði
Genginn er til feðra sinna einn mikilvirkasti hrossaræktandi landsins, Magni Kjartansson 85 ára að aldri. Hann hefur um langt skeið verið í fremstu röð hrossaræktenda í heimi en frá honum hafa komið ófá afrekshrossin. Hrossin kenndi hann við Árgerði í Eyjafirði en hann fluttist þangað árið 1963. Hugur Magna stóð ávallt til hrossaræktarinnar en einkenni hrossanna frá Árgerði eru mikil afköst á gangi og einurð lund.
Í 12. tölublaði Eiðfaxa er fjallað um ævi Magna ásamt nokkrir góðir félagar teknir tali. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing