Magnús Lárusson við dómstörf í Noregi
Kynbótadómarinn Magnús Lárusson dæmir nú kynbótasýningu í Tresfjord í Noregi samkvæmt Worldfeng og heimildum Eiðfaxa. Hann sendi frá sér yfirlýsingu nýlega að hann myndi víkja til hliðar í dómstörfum vegna alvarlegra mistaka. Að sögn Guðlaugs Antonssonar hrossaræktarráðunauts hefur hann eða Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins enga lögsögu yfir störfum Magnúsar Lárussonar erlendis, það mun vera í höndum FEIF. Ekki náðist í Magnús vegna þessa máls.
Yfirlýsing Magnúsar: Á kynbótasýningu á Selfossi nú í vikunni urðu mér á alvarleg mistök. Lét ég orð falla sem eru algerlega óásættanleg fyrir mann í minni stöðu. Ég biðst innilegrar afsökunar á framferði mínu. Ég hef ávallt í mínum störfum gætt hlutleysis við dómstörf og metið hvert hross eins og það hefur komið fyrir í dómi hverju sinni. Friður verður að ríkja um dómstörf kynbótahrossa og traust á því starfi sem þar fer fram. Mín afglöp eru þess eðlis að því trausti er nú ógnað. Mín persónulegu mistök mega ekki verða til þess að að kasta rýrð á það starf. Ég mun því víkja til hliðar í dómstörfum kynbótahrossa að svo komnu máli og ítreka jafnframt afsökunarbeiðni mína til allra þeirra sem hlut eiga að máli.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt