Makalaus málflutningur

  • 21. október 2010
  • Fréttir
Makalaus málflutningur

Þór Saari sagði á alþingi í morgun: “Áhugamál eins og hestamennska og trúarhefðir verða að mæta afgangi…

í fjárlögum á meðan fólk stendur í biðröðum eftir mat“.
Einnig benti Þór á að í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi sé gert ráð fyrir því að veita tæpum fimm milljörðum til þjóðkirkjunnar og milljónum til hestamannafélaga vegna kvefpestar í hrossum. Kallaði hann eftir breyttri forgangsröðun. „Því svona ástand þarf fyrst og fremst að mæta grunnþörfum fólks,“ sagði Þór. „Áhugamál eins t.d. hestamennska eða trúarhefðir, þó menningartengd séu, verða að mæta afgangi“. (www.visir.is)

Það að Þór Saari taki þannig til  orða lýsir miklum þekkingarskorti hans á þeirri atvinnugrein sem hrossarækt, hestamennska og önnur hestatengd starfsemi er.
Vonandi er sjónarmið á borð við þetta vandfundið á meðal þeirra sem stýra þjóðarskútunni, annars stefnum við hraðbyri í strand.

Íslenski hesturinn skapar miklum fjölda fólks atvinnu með beinum og óbeinum hætti, hann laðar mikinn fjölda ferðafólks til íslands og er merkileg arfleifð sem okkur ber að standa vörð um. Fyrir utan þessa hagsmuni er það skylda okkar að finna réttu leiðina til að koma hrossastofninum í gegnum þau veikindi sem hafa herjað á hann.  

Lýsingin á biðröðum fólks sem bíður eftir matargjöfum er sorgleg, ein af þeim leiðum sem við notum til að eyða þessum biðröðum er að hlúa að og efla atvinnu í landinu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link