Malin Schön þjálfari/reiðkennari ársins 2020 hjá FEIF
FEIF verðlaunin fyrir þjálfara/reiðkennara ársins voru fyrst veitt árið 2016 og öllum aðildarlöndum FEIF er boðið að senda inn tilnefningar. Fyrir árið 2020 bárust FEIF tilnefningar frá 6 löndum og 547 sendu inn atkvæði sín í janúar. Þjálfari/reiðkennari ársins 2020 er Malin Schön, sem tilnefnd var af sænska Íslandshestasambandinu (SIF).
Malin Schön er sænsk- íslenskur reiðkennari með 1. stig (Instructor level 1) og að auki íþróttadómari. Hún hefur mikinn áhuga, þekkingu, jákvæða orku og ber mikla virðingu fyrir hestum og mönnum óháð þeirra getu- og metnaðarstigi, ef svo má að orði komast. Þetta gerir hana að fyrirmynd sem leiðbeinanda og þjálfara.
Á síðasta ári kom hún skilaboðum, fræðslu og kynningum sínum á framfæri á námsskeiðum og í gegnum miðla og samfélagsmiðla. Hún fór í sálfræði hestsins og eiginleika hans til að læra og einnig í aðferðir til að hvetja hesta til að læra og í þjálfun sem byggir á ástandi hestsins. Malin sameinar öðruvísi þjálfunaraðferðir og samskiptahæfni í reiðmennsku og grunnvinnu. Hún einbeitir sér að sálrænni og líkamlegri sjálfbærri uppbyggingu hests í sínum þjálfunaraðferðum. Hún veitir öðrum innblástur í að eiga góð samskipti við hestinn í allri sinni umgengni við hann.
Eiðfaxi óskar Malin til hamingju!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH