Málþing: Hvernig náum við meiri árangri?
Fagráð í hrossarækt og Landbúnaðarháskóli Íslands boða til málþings um kynbótakerfið í hrossaræktföstudaginn 6. september kl. 13:00 – 18:00 í Ásgarði á Hvanneyri.
Dagskrá samanstendur af nokkrum inngangserindum um ýmsar hliðar kerfisins en síðan taka við opnar umræður og hópavinna með þátttöku málþingsgesta.
Þingforseti – Ágúst Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ).
· Inngangserindi Guðlaugur V. Antonsson, Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins (Rml).
· Dómkerfið /Ræktunarmarkmið ofl. Víkingur Gunnarsson, Hólum í Hjaltadal.
· Framkvæmd dóma /Menntun dómara ofl. Þorvaldur Kristjánsson, LbhÍ.
· Hlutverk kynbótadóma – Kynbótamat ofl. Elsa Albertsdóttir, LbhÍ.
Allt áhugafólk um kynbætur íslenska hestsins hvatt til að mæta og taka þátt.
Kaffiveitingar brjóta upp dagskrá. Þátttökugjald: 1000 kr – Greitt á staðnum.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram hjá Endurmenntun LbhÍ – www.lbhi.is/namskeid eða í síma 433 5000 og netfangið [email protected] – fram þar að koma fullt nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Hægt er að kaupa hádegisverð í matstofu LbhÍ áður en þingið hefst en nauðsynlegt er að taka það fram við skráningu ef óskað er eftir slíku.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing