Mamma tekur góðar syrpur í Stóðhestabókinni

  • 30. mars 2021
  • Fréttir

Auður Stefánsdóttir hugar að unghryssum í Vindási sumarið 2020.

Viðtal við Auði Stefánsdóttur og Hermann Arason í Eiðfaxa Vetur

Eiðfaxi Vetur er nú á lokametrunum í prenti og mun vonandi berast áskrifendum fyrir páska. Á meðal efnis í Eiðfaxa að þessu sinni er viðtal við þau Auði Stefánsdóttur og Hermann Arason en þau eru heltekin af hestabakteríunni. Grípum niður í viðtalið þar sem Auður segir frá afmælisgjöf fjölskyldunnar til föður hennar, Stefáns Pálssonar, þegar hann varð sjötugur:

„Árið 2004 varð pabbi sjötugur og mamma stingur upp á því hvort það sé ekki upplagt að við gefum honum folatoll í afmælisgjöf. Ég lagði til hryssuna og Völku var haldið undir Þórodd frá Þóroddsstöðum. Ástæðan fyrir því að hann varð fyrir valinu er sú, að auk þess að vera frábær gæðingur, er hann út af honum Fylki frá Flögu sem einn af uppáhaldsreiðhestum pabba var undan. Hryssa þessi sem fæddist var svo að sjálfsögðu skýrð Gjöf og hefur sannað sig í dag sem ræktunarhryssa.“ Segir Auður að Arnþrúður móðir hennar hefur tekið margar góðar ákvarðanir í ræktunarmálunum og það sé dýrmætt að hún hafi ekki síður áhuga á þessu ræktunarbrölti eins og pabbi hennar hafði. „Mamma er tæplega níræð og tekur góðar syrpur í Stóðhestabókinni við val á hestum og rökstyður tillögur vel, það er ómetanlegt að eiga samtal við foreldra sína stóran part ævi sinnar um það sem maður brennur fyrir. Við pabbi töluðum saman um hesta á hverjum degi og undir það síðasta sagði ég honum sögur af hestunum okkar og augun ljómuðu.“

Viðtalið við Auði og Hermann og að sjálfsögðu margt, margt fleira í Eiðfaxa Vetur. Tryggðu þér þína áskrift að Eiðfaxa hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link