Margir háættaðir stóðhestar á tamningaaldri
Á mörgum tamningastöðvum og ræktunarbúum eru frumtamningar hafnar eða við það að hefjast. Að mati margra hrossaræktenda er þessi árstími einhver sá mest spennandi því nú fer að koma í ljós hvernig pörun hryssna og stóðhesta tókst fyrir þremur árum en algengast er að frumtemja hross síðsumars eða að hausti þegar þau eru þriggja vetra.
Blaðamaður Eiðfaxa studdist við Worldfeng til að athuga hvaða stóðhestar eru hæstir í kynbótamati þeirra sem fæddir eru árið 2017 og eru staðsettir hér á Íslandi. Hér má sjá alla stóðhesta sem eru með 120 eða hærra í kynbótamati raðað eftir föður.
Draupnir frá Stuðlum á flesta syni á þessum lista alls 18. Næstur honum kemur Skýr frá Skálakoti með 11 og Spuni frá Vesturkoti á sex syni á þessum lista.
Listinn er til gamans gerður og birtur með fyrirvara um mannleg mistök.