Margrét Tómasdóttir heiðruð fyrir framlag til félagsmála
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður ÍTG, Margrét og Harpa Þorsteinsdóttir, nefndarmaður í ÍTG Ljósmynd: Garðapósturinn
Íþróttafólk í Garðabæ var heiðrað þann 7. janúar en á meðal tilnefndra var m.a. Herdís Björg Jóhannsdóttir Heimsmeistari í tölti ungmenna og fékk hún viðurkenningu þess efnis á hátíðinni.
Herdís var þó ekki sú eina sem Garðabær sá tilefni til að verðlauna tengda hestamennsku því Margrét Tómasdóttir fékk sérstaka heiðursviðurkenningu fyrir starf sitt að félagsmálum bæði fyrir Hestamannafélagið Sprett, áður Andvara, en einnig skátafélagið Vífil. Inn á vef Garðabæjar segir svo um Margréti.
Margrét Tómasdóttir gekk til liðs við skátahreyfinguna á barnsaldri, fyrst í Reykjavík síðan í Kópavogi og Vífli
Hún gegndi öllum helstu foringjastörfum í hreyfingunni á yngri árum og að námi loknu var hún í forystu skátahreyfingarinnar m.a. formaður starfsráðs Bandalags íslenskra skáta, en ráðið fjallar um viðfangsefni skátastarfsins á hverjum tíma. Margrét sat í stjórn Skátafélagsins Vífils í Garðabæ á árunum 1991-1996 og var Margrét einstaklega röggsöm og fylgin sér og á félagið henni margt að þakka! Árið 2004 var hún fyrst kvenna kjörin skátahöfðingi Íslands eftir að hafa gegnt embætti aðstoðarskátahöfðingja um árabil. Margrét var skátahöfðingi alls í sex ár eða til ársins 2010.
Fyrir utan ötult sjálfboðastarf í skátahreyfingunni hefur Margrét unnið óeigingjörn störf fyrir samfélagið í Sólheimum og setið í stjórn og fulltrúaráði Sólheima.
Margrét hefur einnig verið nátengd íþróttastarfi var sjálf ung í Íslandsmeistaraliði Fram í handbolta. Hún sat um tíma í Íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar, hefur setið í stjórn fimleikadeildar Stjörnunnar, var í æskulýðsnefnd Andvara fyrir sameiningu hestamannafélaganna og hefur setið í stjórn Hestamannafélagsins Spretts um nokkurt skeið, komið að skipulagningu stórmóta, komið að fræðslu og æskulýðsstarfi félagsins, stutt við bakið á Landsmótsförum og verið í undirbúningshópi fyrir Landsmót á félagssvæði Spretts. Þá hefur Margrét einnig verið í forystu fyrir fagfélag hjúkrunarfræðinga.
Í öllum störfum sínum hefur Margrét Tómasdóttir verið konum hvatning til að láta til sín taka í þjóðfélaginu.
Eiðfaxi óskar Margréti til hamingju með vel verðskulduð verðlaun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH