„Margt spennandi framundan“
Hestamannafélagið Fákur fagnar 100 ára afmæli sínu á árinu en Eiðfaxi heyrði í framkvæmdastjóra Fáks, Einari Gíslasyni, sem sagði margt spennandi framundan. “Við vonum til þess að geta haldið þessa viðburði sem við erum með á dagskrá nú þegar framundan eru afléttingar á sóttvarnartakmörkunum. Við ætlum að gera mikið úr Degi reiðmennskunnar og stórsýningu Fáks sem verður haldin síðustu helgina í mars. Einnig er fyrirhugað að halda stóra árshátíð 23. apríl en Fákur var stofnaður 24.apríl sem er sunnudagur í ár. Árshátíðin verður á laugardegi og munum við skála á miðnætti fyrir 100 ára afmælinu,” segir Einar.
Einar segir að félagið stefni einnig að því að gefa út veglegt Fáksblað í tilefni afmælisins og stefnt er á að það komi út í mars. “Við ætlum einnig að gera meira úr þessum mótum sem við erum með t.d. verður Reykjavíkurmeistaramótið sérstaklega veglegt í ár. Við höfum alltaf lagt mikið í umgjörð mótsins og verður hún hin glæsilegasta í ár, hálfgerður Landsmóts bragur á því. Hugsanlega verða einhverjir dansleikir í tenglsum við mótið,” bætir hann við en það er greinilegt að Fáksmenn eru stórhuga fyrir komandi ári.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt