Markaðssvæði á Landsmótinu
Hefð er fyrir því að á Landsmóti hestamanna sé hægt að versla ýmiskonar vörur sem þar er til sölu, handverk, fatnað og ýmiskonar varningur sem tengist hestamennskunni. Landsmót á Hólum verður auðvitað engin undantekning á þessu og nú hefur Landsmót fengið til liðs við sig góðan mann sem mun halda utan um allan undirbúning markaðssvæðisins á Hólum. Sá heitir Einar Kolbeinsson, ferðaþjónustubóndi og viðskiptafræðingur. Þeir sem vilja bjóða varning sinn til sölu eða kynningar á markaðssvæði á Landsmótinu eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér til hans með því að senda tölvupóst í netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH