MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku á hryssum

  • 14. maí 2026
  • Fréttir
Leyfið takmarkast við blóðtöku á 4.900 hryssum

Matvælastofnun hefur veitt lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum í samræmi við lög um velferð dýra og reglugerð um vernd dýra notuð í vísindaskyni. Starfsleyfið gildir til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Í umsókn um starfsleyfið var sótt um leyfi til blóðtöku á allt að 10.000 hryssum. Þar sem staðganga er til staðar í stórum hluta tilvika þar sem PMSG (eCG) er notað, ásamt því að ekki liggja fyrir upplýsingar um þörf á aukinni innlendri framleiðslu eCG, taldi Matvælastofnun ekki forsendur til að verða við þeim fjölda hryssa. Starfsleyfið takmarkast því við blóðtöku á 4.900 hryssum.

Náið eftirlit og ítarlegar kröfur í starfsleyfi

Þar segir að ákvörðunin byggi á heildstæðu mati á þeim gögnum sem komi fram í umsókn Ísteka ásamt viðbótarupplýsingum sem óskað hafi verið eftir frá fyrirtækinu.

„Leyfið er einungis gefið út til framleiðslu PMSG (eCG) fyrir notkun þar sem staðganga annarra lyfja er ekki vísindalega fullnægjandi. Eins eru sett inn viðbótarskilyrði til að fyrirbyggja blóðleysi einstakra hryssa. Stofnunin áskilur sér rétt til að endurskoða leyfið ef frekari upplýsingar koma fram á starfsleyfistíma, m.a. í yfirstandandi áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um velferð blóðmera,“ segir í tilkynningunni.

Kemur einnig fram að Matvælastofnun sinni ítarlegu eftirliti með framkvæmd blóðtöku og velferð hryssa.

„Í nýju starfsleyfi eru sett aukin skilyrði sem fela m.a. í sér að leyfishafi skuli fylgjast skipulega með blóðhag hverrar hryssu í blóðtöku á meðan á blóðtöku stendur. Skylt er að veita hryssum hvíld frá blóðtöku ef merki um blóðleysi koma fram. Skilyrðinu er ætlað að tryggja enn betri velferð og lágmarka mögulegan skaða af blóðtöku.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link