Matthías og Bryndís unnu gæðingaskeiðið
Suðurlandsmót yngri flokka fer nú fram á félagssvæði hestamannafélagsins Geysi á Rangárbökkum á Hellu.
Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV
Í gær fór fram forkeppni í íþróttakeppni og gæðingaskeiði í ungmenna og unglingaflokki. Gæðingaskeiðið í ungmennaflokki vann Matthías Sigurðusson og Gammur frá Efri-Þverá með 7,92 í einkunn. Guðný Dís Jónsdóttir varð í öðru sæti á Erlu frá Feti með 7,58 í einkunn og í því þriðja varð líka Matthías Sigurðsson á Huld frá Sauðafelli með 7,54 í einkunn.
Bryndís Anna Gunnarsdóttir og Von frá Ási 1 unnu gæðingaskeiðið í unglingaflokki með 6,67 í einkunn. Ragnar Dagur Jóhannsson varð annar á Urlu frá Pulu með 5,96 í einkunn og Viktoría Huld Hannesdóttir þriðja á Dömu frá Varmalandi með 5,71 í einkunn.
Í dag verður keppt í gæðingakeppni og 100 m. skeiði. og A úrslit verða á morgun. Vakin er athygli á því að ekki verða riðin úrslit í eftirfarandi greinum A flokki ungmenna, B flokki ungmenna og T4 í ungmennaflokki.
Gæðingaskeið PP1
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Matthías Sigurðsson Gammur frá Efri-Þverá 7,92
2 Guðný Dís Jónsdóttir Erla frá Feti 7,58
3 Matthías Sigurðsson Huld frá Sauðafelli 7,54
4 Sigurður Steingrímsson Svartúlfur frá Hákoti 6,75
5 Vigdís Anna Hjaltadóttir Hlíf frá Strandarhjáleigu 4,21
6 Anton Óskar Ólafsson Sinfónía frá Heimahaga 3,00
7 Sigurður Steingrímsson Ugla frá Birkilandi 2,75
8 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Kjalar frá Völlum 2,50
Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Bryndís Anna Gunnarsdóttir Von frá Ási 1 6,67
2 Ragnar Dagur Jóhannsson Urla frá Pulu 5,96
3 Viktoría Huld Hannesdóttir Dama frá Varmalandi 5,71
4 Helgi Björn Guðjónsson Vissa frá Jarðbrú 5,33
5 Elimar Elvarsson Eva frá Strandarhjáleigu 4,88
6 Anna Sigríður Erlendsdóttir Venus frá Skarði 4,38
7 Helga Rún Sigurðardóttir Hljómur frá Þóroddsstöðum 4,29
8 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Höfði frá Bakkakoti 3,75
9 Karítas Ylfa Davíðsdóttir Sæla frá Kröggólfsstöðum 3,33
10 Helga Rún Sigurðardóttir Lás frá Jarðbrú 1 2,38
11 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Gammur frá Ósabakka 2 0,75
Matthías og Bryndís unnu gæðingaskeiðið
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð